Back to All Events

Nyrst, Angist og skurðgoð í Tónabíó

Salur opnar ​19:​30, tónleikar hefjast 20:​00
RVK Bruggstofan er opin frá kl 13:00 til miðnættis
Miðaverð í forsölu: 3990 kr

Doors at 19:​30, music starts at 20:​00
The RVK Brewing Co. taproom is open from 13:00 until midnight
Presale tickets: 3990 kr

----

Laugardaginn 19. september verður slegið til sannkallaðrar djöflarokksveislu í Tónabíó en þá munu hljómsveitirnar Nyrst, Angist og Skurðgoð stíga á svið.

Nyrst hefur starfað síðan 2016, gefið út tvær breiðskífur og er sú þriðja í burðarliðnum. Sveitin hefur komið fram á öllum helstu þungarokkshátíðum landsins en einnig spilað víða um Evrópu á stórum hátíðum á borð við Inferno, Summer Breeze, Mystic Festival og Soulcrusher. Nýtt efni verður frumflutt á þessum tónleikum.

Angist var stofnuð 2009 og hefur skipað sér stóran sess í íslensku þungarokksenunni. Sveitin hefur verið starfandi með mislöngum hléum en komið nýverið fram á tónleikahátíðum bæði hérlendis og utanlands og þar má nefna helst Sátan, Desertfest, G! Festival og Inferno. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríkir um hana.

Skurðgoð hefur gefið af sér gott orð undanfarin ár sem upprennandi fulltrúar nýjustu kynslóðar svartmálms á Íslandi. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu nýlega við miklum undirtektum.

Previous
Previous
August 5

kimono - Arctic Death Ship Live