tónabíó Salarleiga
Fjölbreytt rými fyrir alls kyns tilefni og samkomur.
BÍÓSalur:
tilvalinn FYRIR stóru stundirnar
Stóri salurinn tekur allt að 270 manns og hentar vel fyrir alls kyns viðburði og sérstök tækifæri, svo sem afmælisveislur, brúðkaup og árshátíðir.
Sveigjanlegt rými í uppröðun, hvort sem það eru sætaraðir, veisluborð eða að allir sitji við þægileg kaffihúsaborð. Það fer allt eftir tegund viðburðar og þeirri stemningu sem fólk vill skapa. Bíótjald og öflugt hljóð- og ljósakerfi auðveldar að skapa einstaka stemningu fyrir hvert tilefni.
fremri salur:
Gleðistundir í góðum hóp
Fremri salurinn hentar vel fyrir smærri hópa og tekur 30–40 manns í sæti við langborð. Salurinn er hluti af líflegri bruggstofu RVK en hægt er að afmarka rýmið sérstaklega fyrir hópa sem vilja njóta samveru í rólegra umhverfi. Ekki er sérstaklega tekið gjald fyrir afnot, en gert er ráð fyrir að gestir nýti og njóti veitinga bruggstofunnar.
Tunnuherbergi:
Einstök upplifun
Tunnuherbergið er hlýlegt og afmarkað rými með myndvarpa og hljóðkerfi sem hentar vel fyrir allt að 30 manna einkasamkvæmi og sérviðburði. Þar má sameina notalega samveru við bruggtúr eða sérvaldar bjórupplifanir í nánd við sjálft hjarta bruggunarinnar. Á daginn er rýmið tilvalinn kostur fyrir vinnufundi og kynningar.
Bókaðu þinn viðburð í tónabíói
Sendu okkur línu og við finnum bestu lausnina fyrir viðburðinn þinn í Tónabíó.