RVK bruggfélag tónabíó
úrvals handverksbjór frá leiðandi brugghúsi í hjarta reykjavíkur
22 kranar af handverksbjór
Í Tónabíói rekur RVK Bruggfélag líflega bruggstofu sem er opin alla daga ársins, utan einstaka stórhátíðisdaga. Á krönunum eru jafnan 22 ferskir bjórar beint úr brugghúsinu sem er bak við Tónabíó, ásamt fjölbreyttu úrvali annarra drykkja.
Bruggstofan er opinn fyrir gesti og gangandi á opnunartímum. Ekki er almennt þörf á bókunum, en mælt er með því að bóka borð fyrir stærri hópa með því að senda fyrirspurn hér að neðan.
Í bruggstofu er einnig Bjórbúð RVK þar sem hægt er að taka heim með sér ferskan bjór og valdar handverksvörur — á dósum, í flöskum eða í endurfyllanlegum dunkum, fylltum beint af krana.
Þá eru í boði bjórtúrar fyrir hópa 10 eða fleiri og Bjórskóli RVK þar sem læra má allt um bjórgerð á skemmtilgan hátt. Hafið samband með því að senda fyrirspurn hér að neðan til að fá upplýsingar um hvernið þig getið heimsótt brugghús RVK Bruggfélags.
Fyrir opnunartíma bruggstofu og bjórúrval sjá vefsíðu RVK Bruggfélags
Bókaðu heimsókn
Sendu okkur línu og segðu hvenær þú vilt koma í RVK Bruggfélag Tónabíó og hversu mörg. Við finnum út hvort það er laust pláss fyrir ykkur og tökum frá borð.
Hlökkum til að sjá ykkur!