Tónabíó - þar sem James bond mætti bleika pardusinum
Tónabíó opnaði dyr sínar árið 1962 og varð fljótt eitt vinsælasta kvikmyndahús landsins. Fyrir marga Reykvíkinga var þetta staðurinn þar sem fyrstu stefnumótin áttu sér stað, þar sem biðraðirnar teygðu sig niður Skipholtið og þar sem stærstu myndir samtímans lifðu á hvíta tjaldinu.
Húsið var reist af Tónlistarfélagi Reykjavíkur, sem áður hafði rekið Trípólíbíó í vesturbænum. Með opnun Tónabíós hófst nýr kafli í kvikmyndasögu borgarinnar, og næstu áratugi var bíóið þekkt fyrir mikla aðsókn og einstaka stemningu. Salurinn fylltist kvöld eftir kvöld af áhorfendum sem komu til að sjá stærstu myndir síns tíma. Á gullaldarárunum náði bíóið jafnvel bestu sætanýtingu landsins og tók á móti hundruðum þúsunda gesta á ári hverju.
Eftir að bíórekstri lauk tók húsið á sig ný hlutverk. Um tíma var þar rekið bingó og félagsstarf, og húsið varð áfram samkomustaður fólks þó kvikmyndatjöldin hyrfu.
Í dag hefur Tónabíó fengið nýtt líf. Húsið er aftur orðið staður þar sem fólk kemur saman, nú til tónleika, viðburða, veisluhalda og góðrar samveru. Í húsinu starfar einnig bruggstofa RVK Bruggfélags. Markmiðið er að Tónabíó sé lifandi samkomustaður í borginni. Þar sem Reykjavík kemur saman.
Ljósmyndir: Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Almenn fyrirspurn
Láttu heyra í þér ef þú ert með einhverjar spurningar eða svör…