Back to All Events

Ívar Klausen Útgáfutónleikar

Salur opnar ​19:​00, tónleikar hefjast 20:​00
RVK Bruggstofan er opin frá kl 13:00 til miðnættis

4900 kr
https://tix.is/is/event/21954/

----
MUKKA

Mukka er tilraunakennd hljómsveit frá Reykjavík sem blandar saman lo-fi rafhljóðum, sækadelísku rokki og kraut-innblásinni endurtekningu í dáleiðandi hljóðheim. Sveitin var stofnuð árið 2017 af Guðmundur Óskar Sigurmundsson og Kristjón Hjaltested og hefur þróast úr dúói í fimm manna band með áherslu á lifandi, yfirgripsmikla tónleikaupplifun. Mukka hefur vakið athygli fyrir sterka sviðsframkomu og kom fram á Iceland Airwaves 2025, auk þess að fylgja Júníus Meyvant í Evróputúr sama ár. Með vaxandi orðspori og þróandi hljóðheim eru þeir að festa sig í sessi sem áhugaverð rödd á evrópskri experimental- og indie-senu.

----

KÁRI EGILS

Kári gaf út plötuna Palm Trees In The Snow árið 2023, sem vakti athygli fyrir þroskaðar, melódískar lagasmíðar og vandaðar útsetningar. Hann var valinn Bjartasta vonin á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2024 og nú vinnur hann að útgáfu annarar poppplötu sinnar.

----

ÍVAR KLAUSEN

Ívar Klausen er mjög virkur sem tónlistarflytjandi, session spilari og tónskáld en hann kemur fram á fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum og tónleikum á ári hverju. Efnisskráin verður af léttari kantinum í anda sálarskotinnar popprokk tónlistar af fyrstu sóló plötu Ívars sem kom út í apríl ásamt splúnku nýjum óútgefnum lögum bæði í dúr og moll sem verða leikin á stór og lítil hljóðfæri.

Með Ívari verður besta hljómsveitin í sveitinni:

Alexander Grybos gítar og bakraddir

Bergur Einar Trommur og bakraddir

Kári Egils: Orgel, rafpíanó

Hjálmar Carl Guðnason bassa og bakraddir

Róbert Aron: saxófónn og slagverk

Fjölraddanir, spila gleði og húmor hefur verið einkennandi á tónleikum Ívars.

Komið fagnandi!

-----

DÓPAMÍN

Dópamín eru sérstakir gestir á þessu kvöldi en við ætlum að enda á fönk og gleði bombu! Dópamín er hljómsveit sem stendur svo sannarlega undir nafni – gleði, fjör og húmor frá fyrstu nótu til þeirrar síðustu. Þeir spila fönkblandað rokk og popp sem gerir hlustendum erfitt fyrir að halda aftur af sér!

Previous
Previous
June 21

RHYS CHATHAM - Guitar Trio í Tónabíó

Next
Next
August 5

kimono - Arctic Death Ship Live