Back to All Events

BRIMBALL

Sörfhljómsveit allra landsmanna, Brim, heldur ball í nýopnuðum sal Tónabíós

Þessi glæsilegi retro salur er frá 1962 sem er einmitt uppáhaldsár hljómsveitarmeðlima en Brim hefur frá upphafi einbeitt sér þessum fyrstu árum brimbrettarokksins. 
Það var því ákveðið að skella í skemmtilegt sörf-ball í Tónabíó núna strax eftir páska og hafa lúkkið í anda “Enchantment Under The Sea” skólaballsins í Back To The Future.

Surf-Doom rokkararnir í Godchilla opna kvöldið með sínum lokkandi neðansjávarhljómi. Nýlega sendu þeir frá sér sækódelísku bílabatterísýrurokksplötuna Psionic Dreams, gefna út á vínylformi af Smekkleysu. Von er á ofskynjunum á öldubaki og djúpsjávardrunum.

Þar á eftir tekur La Dimensión við og léttir stemmninguna með sinni gítardrifnu cumbia-stuðtónlist. Carlos Guarneros ásamt félögum sínum í La Dimensión hefur staðið fyrir sprengingu í áhuga á cumbia-tónlist á Íslandi. Meðal annars með kvöldum á veitingastaðnum sínum La Poblana, í Tónabíó og hátíðinni Kumbiavík.

Goðsagnakennda sörfsveitin Brim klárar svo ballið með sínu einstaklega skemmtilega og hressa instrumental sörf-rokki. Brim starfrækja þeir Bibbi Barti, Kafteinn Skeggi, Óli Raki og Danni Bít en hún var áberandi á árunum 1995-1997 og gaf út plötuna "Hafmeyjur og hanastél" hjá Smekkleysu árið 1996 (fyrir 30 árum síðan). Brim er þekkt fyrir óviðjafnanlega stemmningu á böllum og tónleikum og skærbláu hljómsveitarbúningar þeirra renna fólki seint úr minni. 

Forsala aðgöngumiða er á Tix.is en miðaverð er 2500 kr. í forsölu og 3000 kr. við hurð. 

Það verður LIMBÓ-KEPPNI og verðlaun verða gefin þeim sem mæta í flottustu retro-fötunum. 

Komið með dansskóna með ykkur og ekki er verra að vera í Hawaii-skyrtu.

SÖRF'S ÖPP!!!

Previous
Previous
April 1

Bjórskóli RVK

Next
Next
April 11

Bjórskóli RVK