Komdu í Bjórskóla RVK og njóttu 90 mínútna fræðslu, skemmtunar og smakkferðar þar sem þú kynnist alvöru bjórmenningu á léttum, lifandi og aðgengilegum nótum. Stundum teygir kvöldið sig aðeins lengra… það fer eftir stemningu hópsins og alltaf er nóg til að ræða.
Þú færð að smakka sex ólíkar tegundir af bjór – sérvaldar af Ása sem er kenndur við Session, okkar margreynda fræðslustjóra – allt frá léttklassískum ljúflingum til höfugra og framandi kraftsprengja. Við förum yfir:
Sögu bjórsins frá frumgerð til nútíma handverks
Helstu bjórstíla hvað skilur þá að og af hverju
Bruggferlið sjálft hvernig gott hráefni verður að stórkostlegum bjór
Aðferðafræði bragðsmökkunar lærðu að sötra eins og atvinnumenn
Og að sjálfsögðu: sögur, húmor og innsýn í heim bruggara og bjóráhugamanna
Bjórskóli RVK er fullkomið tækifæri fyrir vinnuhópa, vinahópa og alla sem vilja uppgötva hvað bjór getur í raun verið langt út fyrir gullitaða lagerinn.
Komdu með okkur í skemmtilegt, fræðandi og bragðgott kvöld í Tunnuherbergi RVK.
Takmarkað framboð; tryggðu þér sæti!
Miðar eru til sölu á vefsíðu RVK