RVK TÓNABÍÓ
Þar sem reykjavík kemur saman.
Í sögufrægu bíóhúsi fá tónlist, hlátur og lifandi kvöld nýtt heimili.
Gamall salur vaknar aftur til lífsins fyrir nýjar sögur, nýjar minningar og ný kvöld í borginni.
VIðburðir í Tónabíó
Tónleikar, sýningar, uppistand og óvæntar uppákomur sem fylla húsið lífi. Sjáðu hvað er fram undan og finndu næsta kvöld sem þú vilt ekki missa af.
Salarleiga
Stóri salurinn hentar vel fyrir alls kyns viðburði og sérstök tækifæri, svo sem afmælisveislur, brúðkaup og árshátíðir.
Sveigjanlegt rými með sögulegu andrúmslofti í hjarta borgarinnar, þar sem auðvelt er að skapa einstaka stemningu fyrir hvert tilefni.
Auk þess erum við með minni rými sem henta fjölda mismunandi tilefnum.
bruggstofa rvk
Bruggstofa RVK Bruggfélags býður upp á 22 krana með brakandi ferskum bjór, brugguðum á staðnum og bornum fram í einstakri stemningu Tónabíós.
Hér má finna allt frá léttum lager yfir í kraftmikla sérbruggaða bjóra sem finnast hvergi annars staðar.